Slær á hafið himinblæ Hyllir undir dranga Geislum stafar sól á sæ Signir grund og tanga Út með sænum einn jeg geng Að er hrannir falla Heyri’ í blænum hörpustreng Hafmeyjanna gjalla Við þann óminn eyk jeg spor Út við svarta dranga; Það eru hljómar þínir, vor Þeir til hjarta ganga! (Blessað vertu og velkomið Vorið yndisbjarta Þú, sem allt af fró og frið Fyllir sjerhvert hjarta!)