Fjöll í austri fagurblá Freista dalabarnsins Ungur fylgir æskuþrá Upp til jökulhjarnsins Sveimað heimahögum frá Hef ég vors á degi Víða stíða þræddi þá Þunga hraunavegi Heiðin breiða hugumkær Hvetur viljann ofar Leiðin seiðir, fráum fær Fögrum sýnum lofar Gangan sækist öruggt enn Urðarróti móti Einatt hlutu heiðamenn Höggvinn fót á grjóti Hver, sem ofar á að ná Einskis metið getur Þótt í fangið fái sá Fjúk og hretið betur Anda heitum yndi nóg Unaðsreitir geyma Seinna leitar þráin þó Þinna sveita heima