Heyr, himna smiður, 
hvers skáldið biður. 
Komi mjúk til mín
miskunnin þín. 
Því heit eg á þig, þú hefur skaptan mig. 
Eg er þrællinn þinn, 
þú ert drottinn minn. 

Guð, heit eg á þig, 
að þú græðir mig. 
Minnst þú, mildingur, mín, 
mest þurfum þín. 
Ryð þú, röðla gramur, 
ríklyndur og framur, 
hölds hverri sorg 
úr hjartaborg.